Höfuðmarkmið SORPU er að vera leiðarljós samfélagsins í úrgangsmálum og meðhöndla auðlindir af ábyrgð með sjálfbærni að markmiði.
Framtíðarsýn SORPU bs. er að stuðla að innleiðingu hringrásarhagkerfisins, leiða heildarsamræmingu úrgangsmála á starfssvæði sínu og tryggja þannig að málaflokkurinn sé til fyrirmyndar, samfélaginu öllu til hagsbóta.
Byggðasamlagið SORPA annast því meðhöndlun úrgangs og sinnir þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna sex sem að baki því standa.
Aðalstjórn byggðasamlagsins skipa sex fulltrúar, einn frá hverju aðildarsveitarfélagi og skal sá vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Kjörtímabil stjórnarinnar eru tvö ár í senn, frá upphafi kjörtímabils sveitarstjórna.
| Varamenn | ||||
| Kristinn Jónsson | ||||
| Sigrún Hulda Jónsdóttir | ||||
| Kristinn Andersen | ||||
| Margrét Bjarnadóttir | ||||
| Örvar Jóhannsson | ||||
| Ragnhildur Jónsdóttir |
Þróun í starfsemi félagsins og markverðir atburðir:
Ákveðið var að aðskilja rekstur gashreinsistöðvarinnar sem vinnur það gas sem kemur frá urðunarstaðnum og Gaju frá rekstri SORPU og sameina við rekstur Metan og tók sú breyting gildi 1.1.2025. Var síðasta rekstrarár því fyrsta heila rekstrarárið í núverandi rekstrarfyrirkomulagi.
Markmiðið með þessu var að aðskilja vinnslu og sölu á metangasi frá rekstri SORPU og gera hann markvissari. Voru allar eignir SORPU er tengjast gashreinsistöðinni teknar úr eignum SORPU og færðar yfir til Metan með hækkun eigin fjár Metan.
Var hlutafé Metan hækkað sem nemur bókfærðu verðmæti þeirra eigna sem tengdust gashreinsistöðinni að verðmæti 241 milljón króna.
Verður það markmið stjórnar og framkvæmdastjóra Metan að gera Metan að arðbæru félagi og gefa stjórnendur sér um tvö ár til þess.
Voru fjölmargar áskoranir á síðasta ári og voru allir samningar við viðskiptavini endurskoðaðir og einfaldaðir. Varð að hækka gjaldskrána til að gera reksturinn sjálfbæran og óháðan rekstri SORPU bs.
Skoðuð var hagkvæmni þess að endurnýja gashreinsistöðina og eftir ítarlega skoðun var niðurstaðan sú að halda áfram rekstri á núverandi gashreinsistöð næstu fimm árin. Reynt verður að stilla fjárfestingum í hóf til að ná jafnvægi í rekstrinum og ef mögulegt lækka gjaldskrána.
Það eru viðvarandi áskoranir í rekstrinum s.s. að hafa metan samkeppnishæft við aðra orkugjafa og halda rekstrarkostnaði félagsins lágum. Innlend orkuframleiðsla í samkeppni við jarðefnaeldsneyti verður alltaf áskorun fyrir lítið félag eða markaðssvæði en það er áskorun sem stjórnendur Metan ætla að takast á við.