
Breytingar hafa verið fasti í rekstri SORPU undanfarin ár og var árið 2025 þar engin undantekning. Árið var einnig ánægjulegt að því leyti að fræ ýmissa breytingaverkefna sem starfsfólk SORPU hefur sáð og hlúið að undanfarin ár byrjuðu að blómstra á árinu, auk þess sem fleiri fræjum var sáð.
Ein umfangsmesta breyting sem gerð hefur verið á rekstri SORPU er vafalítið sú ákvörðun að hætta að urða blandaðan úrgang á urðunarstað SORPU í lok árs 2023. Áhættan sem í þessu fólst var mikil, enda hefur urðun verið lykilþáttur í starfsemi og rekstri SORPU frá stofnun. Breytingin heppnaðist vonum framar, og árið 2025 var annað heila árið sem blandaður úrgangur var ekki verið urðaður í Álfsnesi, heldur fluttur til Svíþjóðar til orkuvinnslu.
Útflutningur á blönduðum úrgangi til brennslu vekur iðulega upp spurningar um hvort ekki megi nýta þennan efnisstraum til orkuvinnslu á Íslandi. Uppbygging hátæknibrennslustöðvar hefur verið til skoðunar hjá SORPU og fleiri aðilum allt frá árinu 2021, þegar SORPA gaf út fyrstu skýrsluna af þremur um uppbyggingu hátæknibrennslu á Íslandi. Skýrslurnar þrjár má nálgast á vefnum www.htb.is.
Í framhaldi af útgáfu þeirrar þriðju var hafist handa við að vinna að uppbyggingu á brennslu til orkuvinnslu. Til tíðinda dró undir lok ársins 2025 þegar stjórn SORPU fól framkvæmdastjóra byggðasamlagsins að taka þátt í stofnun undirbúningsfélags um uppbyggingu hátæknibrennslu á Íslandi. Ljóst er að uppbygging sem þessi mun taka langan tíma og þarfnast mikillar fjárfestingar, en ekki síður samstöðu um uppbyggingu hennar.
Hátæknibrennsla er þó ekki eina uppbyggingarverkefnið sem SORPA vann að á árinu. Á vormánuðum hófst uppbygging nýrrar endurvinnslustöðvar - þeirrar fyrstu síðan 2010 - við Lambhagaveg í Reykjavík. Stöðin er byggð að norrænni fyrirmynd og verður afkastamesta endurvinnslustöð SORPU þegar hún verður tekin í notkun sumarið 2026. Samhliða því verður stöðinni við Sævarhöfða í Reykjavík lokað, en hún hefur þjónað íbúum á höfuðborgarsvæðinu allt frá því SORPA tók til starfa árið 1991.
Við Lambhagaveg verður ekki bara tekið á móti efni frá fólki og fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, heldur verður þar einnig að finna útibú Góða hirðisins þar sem áhersla verður lögð á sölu byggingarefnis í bland við bækur, kaffibolla, spegla og annað sem viðskiptavinir Góða hirðisins þekkja af góðu. Útibú Góða hirðisins við Lambhaga verður raunar þriðja verslun Góða hirðisins þegar hún opnar í sumar, því stefnt er að opnun útibús á endurvinnslustöðinni við Breiðhellu í Hafnarfirði á vormánuðum ársins 2026.
Skóflustunga nýrrar endurvinnslustöðvar við Lambhaga var ekki það eina markverða sem gerðist í rekstri stöðvanna á árinu. Um mitt árið var opnunartími á stöðinni við Breiðhellu lengdur um helgar, og opnaði stöðin klukkan 09:00 um helgar frá sumarbyrjun. Breytingin mæltist vel fyrir og var einnig innleidd á Sævarhöfða snemma vetrar. Og á aðventunni var opnunartíma allra endurvinnslustöðva SORPU utan einnar breytt, þannig að nú taka fimm af sex stöðvum SORPU á móti viðskiptavinum frá klukkan 09:00 til 19:00 alla daga vikunnar.
Góði hirðirinn er búinn að koma sér vel fyrir í nýju verslunarhúsnæði við Köllunarklettsveg 1, sem opnaði þann 1. apríl árið 2023. Verslunin er hryggjarstykki í hringrásarhagkerfinu á Íslandi, eins og sést glöggt þegar horft er yfir bílastæðið við verslunina af skrifstofu SORPU í sama húsi.
Góði hirðirinn lauk sínu öðru heila ári í nýju húsnæði með glæsibrag. Svo miklum raunar að verslunin var valin besta guðsvolaða verslunin í Reykjavík (e. Best Goddamn Store) af Reykjavík Grapevine. Ekki nóg með það, heldur var Góði hirðirinn líka valinn sá besti af þeim bestu (e. Best of the Best) í Reykjavík af sama tímariti. Á seinni hluta ársins jókst sala á fatnaði til mikilla muna í Góða hirðinum, þegar SORPA tók við söfnun og meðhöndlun á öllum textíl á höfuðborgarsvæðinu.
Hér er aðeins stiklað á því stærsta í rekstri SORPU á árinu og ýmislegt sem ekki ratar í þetta stutta ávarp. GAJA heldur áfram að búa til metangas og moltu úr matarleifunum okkar dag og nótt. Í móttökustöðinni í Gufunesi hefur starfsfólk það enn að leiðarljósi að búa til „bestu bagga í heimi,“ og á þar við það kapp sem lagt er á að ruslabaggar úr blönduðum úrgangi sem sendir eru til orkuvinnslu hafi í senn sem jafnast brennslugildi og geymist vel hjá móttökuaðila í Svíþjóð.
Árið 2025 var því, eins og undanfarin ár í rekstri byggðasamlagsins, viðburðaríkt og uppfullt af verkefnum til að bæta úrgangsmeðhöndlun á höfuðborgarsvæðinu með hringrásarhugsun og hagkvæmni að leiðarljósi. Fjöldi þessara verkefna munu skila árangri á næsta ári og árum, og í kjölfar þeirra verður ráðist í enn önnur verkefni sem stefna að sama marki.