Rekstur

Hlutverk SORPU er að annast meðhöndlun úrgangs og sinna þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna. Það felur í sér rekstur á móttöku- og flokkunarstöð, urðunarstað, gas- og jarðgerðarstöð og sex endurvinnslustöðvum sem reknar eru samkvæmt þjónustusamningi við sveitarfélögin. SORPA hefur einnig umsjón með grenndargámum fyrir hönd sveitarfélaganna og rekur nytjamarkað Góða hirðisins. Um 173 starfsmenn starfa hjá SORPU á tólf starfsstöðvum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Höfuðstöðvar SORPU eru á Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík.

Tekjur

Gjöld

Hér má sjá Ársreikning (PDF)

Gjaldskrá

Gjaldskrá SORPU er endurskoðuð reglulega og byggjast forsendur breytinga á byggingavísitölu og launavísitölu hverju sinni. Verðskrá endurvinnsluefna er endurskoðuð mánaðarlega og getur tekið breytingum í ljósi gengisþróunar, samninga um verð við móttökuaðila og endurgreiðslna Úrvinnslusjóðs.

Gjaldskrá (PDF)